TÖL104G Stærðfræðimynstur í tölvunarfræði, haust 2019



Yfirlit yfir námskeið

Stærðfræðimynstur í tölvunarfræði leggur grunn að margskonar hugtökum, aðferðum og reikniritum innan tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði. Þrepun er t.a.m. nátengd endurkvæmum reikniritum. Líkindafræði kemur mikið við sögu í gervigreind. Örygg tölvusamskipti byggja að miklu leyti á heiltölureikniritum. Net og netreiknirit koma við sögu í flestum greinum vísinda- og verkfræði, þ.á.m. vöruflutningum, hönnun pípukerfa, erfðarannsókum og leit að efni á netinu. Reglulegar segðir og stöðuvélar eru notaðar við margskonar textavinnslu og gegna mikilvægum hlutverkum í forritunamálum.

Eftir að hafa lokið námskeiðinu á nemandi

Námsáætlun

Tölur innan sviga vísa til greina í kennslubók.

Kennslubók:

Námstilhögun

Fyrirlestrar:

Í fyrirlestrum verða lögð fyrir stutt verkefni sem nemendur skila í lok tímans. Dæmatímar verða einu sinni í viku, tvisvar 40 mínútur í senn. Í tímunum verða lögð fyrir dæmi sem nemendur leysa með aðstoð kennara og skila í lok tímans. Nemendur mega vinna saman að lausn þessara verkefna. Heimaverkefni verða lögð fyrir á mánudögum og á að skila þeim á mánudeginum viku síðar.

Aðalkennari:

Námsmat

Samanlögð einkunn tíu bestu heimaverkefna (af 12) gildir sem 20% af lokaeinkunn. Samanlögð einkunn 20 bestu fyrirlestraverkefna (af 27) gildir 5%, samanlögð einkunn 10 bestu dæmatímaverkefna (af 13) gildir 5% og lokapróf gildir 70%. Þó verður að ná einkunninni 5 á lokaprófinu einu sér, auk þess að ná þeirri einkunn samanlagt, til þess að standast námskeiðið.

Engin hjálpargögn eru heimiluð í prófinu. Ekki er sérstök skilaskylda né mætingarskylda í fyrirlestrum eða dæmatímum til að öðlast próftökurétt.

Námskeiðsvefur

Kennarar setja tilkynningar og svara almennum fyrirspurnum um námskeiðið á vef sem kallast Piazza. Heimadæmi (og e.t.v. skýringar við þau), efni úr fyrirlestrum og lausnir á völdum dæmum fara líka á Piazza. Mikilvægt er því að skoða vefinn reglulega.

Nemendur skrái sig á piazza.com/hi.is/fall2019/tol104g. Fyrst þarf að velja ''Fall 2019'', haka við "Join as Student" í TOL104G, smella á "Join Classes" og loks gefa upp HÍ tölvupóstfang (hafið samband við aðalkennara ef þið lendið í vandræðum með skráningu). Svonefnd vikublöð verða sett á Piazza á föstudögum í hverri viku. Á vikublöðum verður að finna viðbótar athugasemdir ef fjallað verður um efni utan kennslubókar.

Samvinna nemenda og skil heimadæma

Nemendur eru hvattir til þess að ræða saman um námsefnið sín á milli, t.d. með því að hittast reglulega í 2ja - 4ra manna hópum. Þeir nemendur sem vinna að lausn heimadæma með öðrum þurfa alltaf að skrifa upp og skila inn sinni eigin lausn. Þeir þurfa ennfremur að tilgreina með hverjum var unnið að lausn verkefnisins.

Það er óheimilt að fá lausnir hjá öðrum, afrita lausnir eða láta aðra fá lausnina sína. Ef kennarar verða varir við afritaðar lausnir munu þeir lækka einkunn fyrir viðkomandi verkefni. Hikið ekki við að leita til aðalkennara ef þið eruð í vafa um hvað telst eðlileg samvinna og hvað ekki.

Lausnir á heimaverkefnum eiga að vera læsilegar og þær á að merkja nafni nemanda og númeri dæmahóps. Ekki verður tekið við illlæsilegum eða hroðvirknislega unnum lausnum og ekki er tekið við lausnum sem berast of seint.

Verkefnum er skilað gegnum Gradescope. Ef nemandi telur að mistök hafi verið gerð við yfirferð verkefnis getur hann beðið um endurmat á því. Í slíkum tilvikum þarf að skrifa stutta lýsingu á því hvað nemandinn telji vera rangt gert í yfirferð. Frestur til að gera athugasemdir er ein vika frá því að að yfirförnu verkefni var skilað til baka.